7.7.4.1 Pollagæðingakeppni Þáttökuréttur og skráning: Þátttökurétt hafa öll börn 9 ára á árinu og yngri. Allir pollar skulu fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Ekki skal keppt í pollaflokki á Landsmóti. Pollum er ekki heimilt að keppa á stóðhestum. Völlur 300 metrar. Forkeppni Verkefni: 2-5 keppendur inni á vellinum í einu. Gefið skal upp við skráningu hvort riðið sé upp á hægri eða vinstri hönd. Þulur stjórnar keppni. Riðið skal að lágmarki 2 hringi og að hámarki 3 hringi í hverju verkefni. Tölt eða brokk, hægt til milliferð Fet Dómar: 3 - 5 dómarar dæma með spjöldum 5 - 10. Gefin skal einkunn fyrir stjórnun og ásetu sem gildir 1/2 af heildareinkunn, þ.e. deilitala dómara er 4. Meðaleinkunn reiknuð. Heimilt er að skera úr um úrslit í forkeppni og sleppa þar með úrslitum, enda séu keppendur 5 eða færri og hafi keppt saman í forkeppni. Úrslit Verkefni: Þeir keppendur, sem eru í fyrsta til fimmta/áttunda sæti eftir forkeppnina, koma saman á völlinn, sem er 300 m. Tölt eða brokk, hægt að milliferð Fet Tölt eða brokk allt að tveimur hringjum til hvorrar handar. Þó má ekki meira en þrjá hringi á hvora hönd. Dómar: Í úrslitakeppni gefa dómarar einkunnir fyrir hvert atriði. Að auki er gefin sérstök einkunn fyrir ásetu og stjórnun og deilt í samtölu með 4. Að lokum skal rétt upp einkunn fyrir hvern knapa. Almennar ábendingar Sérstakt tillit er tekið í dómum til eftirfarandi atriða: Hreinleika gangsins. Léttleika, jafnvægis, fallegrar reisingar og fjaðrandi hreyfinga. Ásetu og taumhalds, hversu virkur knapinn er. Tekið skal á grófri reiðmennsku í dómi.