Á mánudaginn verður fyrra samhæfingarnámskeið ársins haldið í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal kl: 18:00. Námskeiðið kostar 15000 kr. og félagsgjaldið er 3000 kr. Allir dómarar eiga að hafa fengið sent í vefpóst myndbönd sem við biðjum ykkur um skila inn fyrir mánudaginn. Á laugardaginn þann 9. mars stendur GDLH ásamt hestamannafélaginu Spretti fyrir gæðingamóti í Samskipahöllinni og vonumst við eftir að sjá ykkur sem flest þar.
0 Comments
Að venju verða tvö námskeið haldin í vetur til samhæfingar dómara. Það fyrra verður í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal þann 11. mars kl. 18 og það síðara að Hólum í Hjaltadal þann 28. mars kl. 18.
Fræðslunefnd gæðingadómarafélagsins stóð fyrir nýdómaranámskeiði í Þýskalandi á dögunum. Þeir Valdimar Ólafsson og Sindri Sigurðsson stóðu fyrir námskeiðinu fyrir okkar hönd og nutu halds og trausts Erlendar Árnasonar formanns GDLH. Það hefur ekki verið þrautalaust að ná samstarfi við Þýskalandi en það horfir til betri vegar þar sem námskeiðið tókst afar vel og okkur þykir sérstaklega ánægjulegt að bjóða níu nýja gæðingadómara í Þýskalandi í okkar raðir. En þau eru: Alexander Fedorov Anna Lisa Zingsheim Dieter Becer Glenn Kessner Jula Mann Nicolas Fedorov Ralf Wohlleib Saskia Ruffert Willi Becker Til hamingju! Þann 18. október síðastliðinn var aðalfundur félagsins haldinn. Ljóst var fyrir fundinn að miklar breytingar yrðu á stjórn GDLH þar sem margir í fráfarandi stjórn gáfu ekki kost á sér að þessu sinni. Magnús Sigurjónsson hafði ákveðið að stíga til hliðar sem formaður og Gísli Guðjónsson, Ingibergur Árnason, Helga Claessen og Stefán Ágústsson gáfu ekki kost á sér í stjórn. Þeim er öllum þakkað kærlega fyrir sín störf á undangengnum árum. Í félaginu eru sem betur fer margir dugmiklir dómarar sem eru tilbúnir að leggja sitt að mörkum. Eftir kosningar varð ljóst að Erlendur Árnason er nýr formaður GDLH. Jón Þórberg Steindórsson og Sigurður Sigurðarson hlutu kosningu í aðalstjórn og Darri Gunnarsson og Jóhann G. Jóhannesson í varastjórn. Ágúst Hafsteinsson mun áfram gegna stöðu gjaldkera og Ólafur Árnason verður áfram ritari félagsins. Stjórnin hefur þegar tekið til starfa og fyrsta verk hennar var að skipa í fræðslunefnd. En hana skipa Valdimar Ólafsson formaður, Gísli Guðjónsson, Marjolijn Tiepen, Sindri Sigurðsson, Stefán Ágústsson og Valur Valsson. Fundargerðir verða aðgengilegar á síðu GDLH innan skamms.
Þá ættu allir virkir dómarar að vera komnir með aðgang að Sportfeng. Sumir voru þegar komnir með aðgang og nota hann hér eftir sem áður. Hinir sem ekki hafa áður verið á Sportfeng eiga að hafa fengið sendan tölvupóst með aðgangs- og lykilorði. Ef einhverjir hafa ekki fengið hann sendan vinsamlegast hafið samband hið fyrsta. Við viljum ítreka að allir dómarar eiga að kynna sér vel hvernig kerfið virkar og kunna á það þegar mótin hefjast.
|
GDLHTöluvpóstur: gdlhdomarar@gmail.com Lög og reglur
November 2023
Fréttir |