77.7.4 Verkefni yngri flokka
7.7.4.4 Ungmennaflokkur Riðnir skulu þrír hringir og sýnt fet, hægt tölt, brokk, stökk og greitt tölt á langhliðum. Einkunnum fyrir fegurð í reið og vilja er bætt við.
7.7.5 Keppnisréttur í úrslitum yngri flokka Á félagsmótum skulu þeir keppendur, sem hæstar einkunnir hafa hlotið í forkeppni, koma aftur fyrir dómnefnd og skal þá endanlega skorið úr um röð keppenda í úrslitakeppninni. Í úrslitakeppni skulu taka þátt jafnmargir knapar og verðlaun eiga að hljóta. Framkvæmdanefnd sér um að allir keppendur beri greinileg númer á báðum hliðum t.d. á stígvélum.
7.7.6 Framkvæmd úrslita í yngri flokkum Hestunum er riðið samtímis, en með ákveðnu millibili, í dóm. Stjórnandi segir til um í samræmi við reglur hvaða atriði ber að sýna hverju sinni. Hann skal sjá um að jafnt sé riðið á báðar hendur.
7.7.6.4 Úrslitakeppni – ungmennaflokkur Hægt tölt, brokk, greitt tölt á langhliðum. Minnst tveir hringir til hvorrar handar. Í ungmennaflokki er gefin einkunn eftir hverja gangtegund fyrir hvern keppanda og í lokin fyrri fegurð í reið og vilja, hvort fyrir sig.