Upprifjun sem var auglýst þann 26. mars hefur verið færð fram um einn dag og verður því haldin miðvikudaginn 25. mars kl: 19:00
0 Comments
Upprifjunarnámskeið félagsins á Íslandi verða haldin sem hér segir:
Fimmtudaginn 12. mars í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal kl: 18:00 Miðvikudaginn 26. mars að Hólum í Hjaltadal kl: 19:00 Aðalfundur félagsins fór fram þann 13 nóvember í húsakynnum ÍSÍ. Fráfarandi stjórn fór yfir starfsárið og ársreikning félagsins sem var samþykktur einróma. Fræðslunefnd félagsins fór yfir það helsta sem hún hefur fengist við á starfsárinu. Þeir sem vilja fræðast frekar um fundinn er bent á fundgerð hans undir hér á síðunni undir fundargerðir stjórnar.
Ljóst var að kjósa þurfti nýjan formann þar sem Erlendur Árnason fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til starfa að þessu sinni og er honum hér með þakkað fyrir góð störf í þágu félgsins. Jón Þorberg Steindórsson gaf einn kost á sér til formennsku og hlaut hann einróma kosningu. Lögum samkvæmt var kosið um tvö sæti í stjórn, til tveggja ára, en Þar sem Jón Þorberg sat í stjórn bættist við laust sæti til eins árs. Ágúst Hafsteinsson var endurkjörinn en ný inn í stjórn koma þau Randi Holaker og Reynir Örn Pálmason. Darri Gunnarsson og Jóhann G. Jóhannsson hlutu endurkjör í varastjórn. Að loknum kosningum var tekið til við önnur mál en þær umræður voru einkar frjóar og gagnlegur og ljóst að ný stjórn hefur úr ýmsu að moða eftir þær. Nýrri stjórn er hér með óskað velfarnaðar í starfi um leið og þeirri gömlu er þakkað fyrir vel unnin störf. Stjórn 2019-2020 Jón Þorberg Steindórsson Formaður Ágúst Hafsteinsson Sigurður Sigurðarson Randi Holaker Reynir Örn Pálmason til eins árs varastjórn: Darri Gunnarsson Jóhann G. Jóhannsson Aðalfundur félagsins verður haldinn í húsakynnum ÍSÍ miðvikudaginn 13. nóvember. Allir félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta.
Síðastliðið vor stóð fræðslunefnd félagsins fyrir námskeiði fyrir ný og landsdómara. Fríður hópur hestamanna mætti til leiks og þreyttu alls 11 próf að lokum. Óhætt er að segja að námskeiðið hafi heppnast vel en í raðir okkar hafa bæst 7 félagsdómarar og tveir landsdómarar. Það bætist því en í hóp gæðingadómara og sérstaklega ánægjulegt að sjá landsdómurum fjölga í þeim löndum þar sem uppgangur gæðingakeppninar er hvað mestur sem styrkir okkar starf í Evrópu. Við viljum við nota tækifærið og bjóða þessa nýju dómara velkomna í hópinn og óska þeim velfarnaðar í starfi en þau eru:
Félagsdómarar: Elvar Logi Friðriksson Halldór Sigurkarlsson Haukur Bjarnason Ingi Björn Leifsson Randi Holaker Reynir Atli Jónsson Reynir Örn Pálmason Landsdómarar: Hekla Katharína Kristinsdóttir Mathilde Hjort |
GDLHTöluvpóstur: [email protected] Lög og reglur
March 2025
Fréttir |