Fyrsta verkefni nýrrar stjórnar var að skipa í fræðslunefnd starfsársins. Það er nú orðið ljóst hverjir skipa nefndina og bjóðum við hana velkomna til starfa um leið og við þökkum öllum þeim sem störfuðu í nefnd síðasta árs fyrir vel unnið starf, viljum við þakka Sérstaklega þeim Loga Laxdal og Sigurði Straumfjörð Pálssyni sem hafa unnið gott starf síðustu ár en munu ekki starfa í fræðslnefnd félagsins þetta árið.
fræðslunefnd 2017 - 2018 Gísli Guðjónsson, formaður. [email protected]. s: 8494505. Marjolijn Tiepen, [email protected], 8646958. Sindri Sigurðsson, [email protected], s: 8623512. Valdimar Ólafsson, [email protected], s: 6603199. Valur K. Valsson, [email protected], s: 8679785.
1 Comment
Þann fyrsta nóvember síðastliðinn fór fram aðalfundur félagsins. Á hann mættu rúmlega tuttugu félagsmenn. Fundurinn fór fram með hefðbundum hætti, Magnús Sigurjónsson kynnti skýrslu stjórnar og lagði fram ársreikning félagsins. Valdimar Ólafsson fulltrúi fræðslunefndar kynnti starf nefndarinnar á árinu. Málefnalegar umræður sköpuðust á fundinum um störfin á árinu og hvernig mætti bæta úr því sem betur má fara .
Kosningar fóru fram og var kosið um formann, tvö sæti í aðalstjórn og tvö í varastjórn. Fór það svo að Magnús Sigurjónsson fékk stuðning fundarins til þess að gegna áfram formennsku í félaginu. Ólafur Árnason hlaut kosningu í aðalstjórn og tekur sæti í stjórn sem ritari félgagsins. Gísli Guðjónsson, Helga Claessen og Stefán Ágústsson endurnýjuðu öll umboð sitt til áframhaldandi stjórnarstarfa. Stjórnin þakkar fyrir góðan fund og hlakkar til komandi árs í góðu samstarfi við dómara félagsins. Stjórn 2017 - 2018 Magnús Sigurjónsson, formaður. Ágúst Hafsteinsson, gjaldkeri. Ólafur Árnason, ritari. Gísli Guðjónsson, aðalstjórn. Ingibergur Árnason, aðalstjórn. Helga Claesson, varastjórn. Stefán Ágústsson, varastjórn. |
GDLHTöluvpóstur: [email protected] Lög og reglur
November 2023
Fréttir |