Aðalfundur GDLH verður haldinn í Vindási félagsheimili Borgfirðings miðvikudaginn 27.nóvember kl 20.
Hefðbundin aðalfundarstörf. Fyrir fundinum liggur eftirfarandi tillaga að lagabreytingu. 9. gr Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi, formaður sérstaklega til eins árs og fjórir meðstjórnendur til tveggja ára, tveir og tveir í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Kosnir skulu tveir varamenn til eins árs. Tveir skoðunarmenn skulu kosnir á aðalfundi og tveir til vara. Stjórnin annast almenna stjórn félagsins milli aðalfunda og gætir laga og reglna sem gilda hverju sinni. Stjórnin skal sjá um að framkvæma samþykktir aðalfundar. Stjórn skal boða til dómararáðstefnu á hverju hausti. Stjórn er heimilt að boða til félagsfunda milli aðalfunda ef ástæða þykir til. Stjórn er skylt að boða til félagsfundar ef 1/3 félagsmanna óska þess skriflega. Stjórn skal fyrir 1. maí ár hvert senda stjórn L.H. skrá yfir starfandi gæðingadómara. 9. gr Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi, formaður sérstaklega til eins árs og fjórir meðstjórnendur til tveggja ára, tveir og tveir í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Kosnir skulu tveir varamenn til eins árs. Tveir skoðunarmenn skulu kosnir á aðalfundi og tveir til vara. Stjórnin annast almenna stjórn félagsins milli aðalfunda og gætir laga og reglna sem gilda hverju sinni. Stjórnin skal sjá um að framkvæma samþykktir aðalfundar. Stjórn skal boða til dómararáðstefnu á hverju hausti. Stjórn er heimilt að boða til félagsfunda milli aðalfunda ef ástæða þykir til. Stjórn er skylt að boða til félagsfundar ef 1/3 félagsmanna óska þess skriflega. Stjórn skal fyrir 1. MARS ár hvert senda stjórn L.H. skrá yfir starfandi gæðingadómara. Kveðja stjórn GDLH
0 Comments
|
GDLHTöluvpóstur: [email protected] Lög og reglur
October 2024
Fréttir |