Dómarapróf GDLH
Stjórn og fræðslunefnd gæðingadómarafélagsins hafa ákveðið að bjóða upp á ný- og landsdómarapróf í gæðingakeppni. Bóklegi hlutinn mun fara fram á Blönduósi helgina 14.-15. apríl. Verklegi hluti námskeiðsins mun fara fram samhliða gæðingamóti í vor og verður nánar auglýst fyrir þátttakendur hvaða dagsetning og staðsetning verður fyrir valinu þegar nær dregur. Skráning berist á netfangið [email protected] Verð nýdómaraprófs og gagna er 70.000 kr Verð landsdómaraprófs og gagna er 45.000 kr Skráningafrestur á ný- og landsdómarapróf er 23.mars. Þátttakendur staðfesta skráningu sína með því að greiða 25.000 kr staðfestingargjald og senda kvittun fyrir staðfestingargjaldinu á [email protected] Reikningsnúmer 526-26-42110 Kennitala: 421008-0940 Nauðsynlegt er að þátttakendur mæti vel undirbúnir til leiks og verði búnir að kynna sér lög og reglur LH ásamt leiðara gæðingadómara. Stjórn og fræðslunefnd áskilur sér rétt til að fella niður námskeiðið ef ekki næst næg þátttaka. Stjórn gæðingadómarafélagsins bendir á að mörg hestamannafélög styrkja félagsmenn sín um þátttöku á dómaranámskeiðum og bendum við fólki á að hafa samband við sín hestamannafélög og sækja um styrk. Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við eftirtalda aðila. Magnús Sigurjónsson formaður GDLH ; sími 698-3168 Gísli Guðjónsson formaður fræðslunefndar ; sími 849-4505
1 Comment
Kæru dómarar,
nú á að hafa borist ykkur spurningalisti með tuttugu og fimm spurningum sem við viljum biðja ykkur um að svora fyrir fimtudaginn 8. mars. Þeim sem ekki hefur borist þess listi með tölvupóst eru beðnir um að senda okkur upplýsingar um virkt póstfang á [email protected] kv, stjórn og fræðslunefnd Dómaranámskeið GDLH vorið 2018
Fyrirhugað er að halda ný- og landsdómarapróf í gæðingakeppni á komandi vori. Stjórn GDLH stefnir á að prófið fari fram á Norðurlandi að þessu sinni en það ræðst að sjálfsögðu af þátttöku. Við viljum beina þeim tilmælum til hestamannfélaga, að athuga áhuga á námskeiðinu, hjá sínum félagsmönnum. Þeir sem kunna að hafa áhuga sendi vinsamlegast póst á e-mailið [email protected]. Stjórn gæðingadómarafélagsins bendir á að mörg hestamannafélög styrkja félagsmenn sín um þátttöku á dómaranámskeiðum og bendum við fólki á að hafa samband við sín hestamannafélög og sækja um styrk. Námskeiðinu verður skipt á tvær helgar, þá fyrri fer fram bókleg kennsla og seinni helgina verkleg kennsla meðfram gæðingamóti. Kostnaður við nýdómarapróf og gögn er 70.000 kr. og landsdómarapróf og gögn kostar 45.000 kr. Stjórn GDLH |
GDLHTöluvpóstur: [email protected] Lög og reglur
October 2024
Fréttir |