7.7.4 Verkefni yngri flokka
7.7.4.2 Barnaflokkur
Riðnir skulu tveir hringir og sýnt fet, tölt og/eða brokk og stökk. Sýni barn bæði brokk og tölt er
einkunn fyrir betri gangtegundina notuð.
7.7.5 Keppnisréttur í úrslitum yngri flokka
Á félagsmótum skulu þeir keppendur, sem hæstar einkunnir hafa hlotið í forkeppni, koma aftur fyrir
dómnefnd og skal þá endanlega skorið úr um röð keppenda í úrslitakeppninni. Í úrslitakeppni skulu
taka þátt jafnmargir knapar og verðlaun eiga að hljóta.
Framkvæmdanefnd sér um að allir keppendur beri greinileg númer á báðum hliðum t.d. á stígvélum.
7.7.6 Framkvæmd úrslita í yngri flokkum
Hestunum er riðið samtímis, en með ákveðnu millibili, í dóm. Stjórnandi segir til um í samræmi við
reglur hvaða atriði ber að sýna hverju sinni. Hann skal sjá um að jafnt sé riðið á báðar hendur.
7.7.6.2 Úrslitakeppni – barnaflokkur
Tölt og/eða brokk skal sýna minnst tvo hringi til hvorrar handar. Sýni barn bæði brokk og tölt er
einkunn fyrir betri gangtegundina notuð. Stökk skal sýna tvo spretti, einn í einu, með hraðamun og
mjúkri niðurhægingu. Keppendur safnist saman á skammhlið og komi sér saman um, í samráði við
stjórnanda, í hvora áttina ríða skal.
Eftir hverja gangtegund er gefin einkunn fyrir hvern keppanda og í lokin fyrir stjórnun og ásetu.